SORGLEGT!

Norðfirska fata og  tískuvöruverslunin System, hafði að baki  nær 23. ára rekstur, þá henni var lokað. Lokað að tilhlutan ákvörðunar  stjórnenda núverandi „ Sparisjóðurinn Norðfirði.“ Verslunin var þekkt fyrir úrval fata og  tískuvarnings, auk annars, og ástundaði góða þjónustu. Rekstur hennar var Norðfirskri byggð og samfélagi til sóma.  Efldi jákvætt svipmót byggðar!  System hefur alla tíð verið í eigu dugmikilla Norðfirskra hjóna.  Þeirra Víglundar Gunnarssonar og Jónu Bjargar Óskarsdóttur. Sorgleg er staðan, nú!  Að blómleg verslun skuli vera í rúst lögð! Trúlegast af mistækra manna völdum!  Verðmætum umbúnaði verslunar, varpað í upplausn!   Vörulager marg auglýstur til útsölu, með allt að 80% afslætti. Spurningar vakna! Að hvaða marki stefnir stjórn sparisjóðsins með þess háttar aðför?  Stefnir hún:  Að verndun verðmæta?  Að eflingu eigin viðskiptavildar og trausti Norðfirðinga?  Að eflingu fjölbreyttni atvinnulífs í Neskaupstað?  Að milljóna tapi Sparisjóðsins?  Í stofnskrá forverans  –Sparisjóðs Norðfjarðar- var  það markmið efst, að stuðla að eflingu atvinnuhátta og  byggðar í Norðfirði! Slík markmið virðast ekki til staðar, nú!  Sorglegt að árangur þrotlausrar  uppbyggingar til þjónustu og atvinnusköpunar, skuli nú, varpað fyrir björg!            Bara sisona! 

Í fjöld daga,  hafa dreyfimiðar  borist úr pósti. Síðastur þeirra, boðar drambslega:  „LOKA – LOKA LAGERÚTSALA“ / „Laugardaginn 14.júní“ / „allt verður selt með 80% afslætti“     Hvert er álit núverandi  hluthafa í „SPARISJÓÐURINN Norðfirði“  Eitt sinn var  hann og hét Sparisjóður Norðfjarðar!  Væri máski rökrétt að „Sparisjóðurinn Norðfirði“ væri falboðinn á útsölu!  Þar sem „allt verður selt með 80% afslætti.“ 

 Rústa þar með afkomu  starfsfólks og forstöðumanna!

BARA  SISONA? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gestur Janus Ragnarsson

Höfundur

Gestur Janus Ragnarsson
Gestur Janus Ragnarsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Byggðamyndir 40
  • IMG_3412
  • Brúðkaupsmynd
  • Rakel Guðlaug
  • 008

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband