STJÓRNSÝSLUBÓFAR! Eignuðu sér samfélag, byggð og stjórnsýslu!

Í síðustu bloggskrifum dró ég fram, að bæjarstjórn er sjálfstætt afmarkað stjórnsýsluvald. Háð fyrirmælum laga! Að embætti sýslumanns er annað stjórnsýsluvald. Háð fyrirmælum laga!  Í raun, rekstrardeild á vegum Dómsmálaráðuneytis. Undir þess eftirlyti og yfirstjórn. Hið fyrrnefnda er umboðsvald til umsjónar og þróunar samfélagsmála bæjarfélags. Kostað úr bæjarsjóði. Hið síðarnefnda er hluti landsstjórnar. Undir foræði og eftirlyti Dómsmálaráðuneytis. Kostað úr ríkissjóði. Megin verkefni þess -að lögum- er að gæta almenns öryggis, réttarstöðu og lögverndar íbúa og annarra hlutdeildar aðila, hins daglega lífs. Báðum þessum stjórnvaldsstigum er óheimilt að mynda hverskonar samráð. Samráð: Til lögbrotsathafna gegn saklausum! Til obeldis og eineltis gegn saklausum! Til rústunar eigna saklausra! Til samráðs um lögréttindamissi saklausra!  Og fleira, og fleira! Forstöðumenn beggja stjórnsýslustiga –bæjarstjórna og sýslumannsembættis- stofnuðu samt til ólögmætrar samstöðu og samráða, sín í milli!  Frömdu glæpinn!  Um ára vís!  Brugðu þannig -yfirvegað og markvist- slagbrandi fyrir farveg ofbeldisþolenda, til réttarsókna!  Réttarfarsleið málskota til efri dómsstiga! Með samráði nefndra stjórnsýslustiga, upphófst langtíma skálmöld og vígatíð óstöðvandi lögbrota, ofbeldis og stjórnsýsluglæpa!  Glæpa sameinaðra stjórnsýslubófa gagnvart saklausum!  Með bófabrögðum tókst Bjarna, sýslumanni og Smára, forseta bæjarstjórnar, fyrirbyggja réttarrannsóknir og aðkomu efri dómstiga.  Innan tímarýmis, sem þannig gafst, lánaðist Norðfirskum stjórnsýslubófum, einnig, eigna sér samfélag, byggð og stjórnsýslu Neskaupstaðar!  Um ára bil!  Hversu slíkt fær staðist, án aðkomu dómstóla?  Því er ósvarað!  Slíkur getur árangur ólögmætra athafna, sameinaðra bófa, valdræningja og borðalagðra, orðið!                   

Á ögurstundum!  Þá æðri yfirvöld dómsstiga og ráðuneyta hvílast þyrnirósar svefni!

Á ögurstundum!  Þá siðferðisvitund og siðferðisvaka samfélags bilar og blundar!                                                            

 

 


LÖGSKIPUÐ EMBÆTTISSKYLDA SÝSLUMANNS / LÖGREGLUSTJÓRA ?

  

Sýslumaður skal viðhafa löghlýðni, siðfágun, mannvirðingu og heiðarleik, við embættis störf!  Rekstur embættis sýslumanns/lögregustjóra er sjálfstætt stjórnsýsluvald innan hvers sýsluumdæmis. Rekstur Embættis bundinn eftirlyti og yfirstjórn Dómsmálaráðuneytis. Kostað úr ríkissjóði.   Sýslumaður hefur eftirlitsskyldu með lögmæti gjörða bæjarbúa og  starfshátta bæjarstjórna! Sem og með tilfallandi háttsemi, athafna er upp koma í samfélagi. Sýslumaður er hvorki undirsáti né einkaþjónn ráðsmennsku bæjarstjórna. Embætti sýslumanns er lögboðið yfirvald bæjarstjórna! Ein megin embættisskylda sýslumanns er að gæta lögverndar: Hvers einstaklings! Hverrar fjölskyldu! Sérhvers atvinnurekstrar og starfsstöðva! Embættið ber verndarskyldu yfir velferð borgara! Í hverju sem er, ásamt eftirlyti með ýmsum öryggisþáttum, hins daglega lífs. Sýslumaður hefur ekki lögheimildir til að láta ofbeldismenguð,  ómálefnaleg sjónarmið, né persónubundinn geðþótta, vera ráðandi við embættisgjörðir. 

Að lögum má sýslumaður ekki gerast ofbeldisböðull né mannorðs ræningi!

 

 

 


HVERT ER LÖGSKIPAÐ STJÓRNSÝSLUMBOÐ BÆJARSTJÓRNA ?


Hver sá sem kjörinn er til samfélagsstarfa, sem fulltrúi í bæjarstjórn, hefur hlotið umboð kjósenda til stjórnar og valdsákvarðana til framþróunar síns sveitarfélags. Umboð það,  grundvallað á heimildum laga og reglugerða. Kjörinn fulltrúi hefur ekki öðlast eignarétt á byggð né bóli! Hefur eigi hlotið ráðstöfunarrétt varðandi lífsafkomu einstaklinga! Hefur eigi hlotið heimild til stjórnarsamþykkta er skapast af geðþótta og skapsmunum. Allar stjórnvalds ákvarðanir verða að hafa stoð í lögum og lögmætum reglugerðum. Geðþóttavald, frekja og ofbeldi á ekki stuðning í lögum! Ofbeldismenguð geðþóttaákvörðun er því ómarktæk stjórnargjörð!  Lögleysa!  Sama hvaða borðalögð gullhúfa stendur að baki gjörðar!    

 Viðhafi bæjarstjórn og undirnefndir, ólögmætar stjórnvaldssamþykktir og athafnir í formi ofbeldis, geðþótta eða pólitísks heiftarhuga, og eða önnur lögbrot gegn mannréttindum, þá varðar slíkt beitingu refsilaga gagnvart bæjarstjórn og nefndum. Komi til slíkra kringumstæðna, þá hefur viðkomandi bæjarstjórn fyrirgert stjórnvaldsumboði sínu. Umboði, fengnu frá kjósendum á lögboðnum fjögura ára fresti.



STÖÐVUM STARFSHÆTTI VALDRÆNINGJA.

Meginmarkmið í ritun minnar bloggsíðu er að opinbera lögleysu, misrétti, einelti, ofbeldi og kúgun af hálfu valdræningja í stjórnsýslu. Hvar og hvenær sem gerist. Fyrirlyggjandi efnistök eru mýmörg, á biðlista. Af og til munu birtast efnistök almenns eðlis. Stjórnsýsla Neskaupstaðar/Fjarðabyggðar hefur í gegnum áratugi reynst rotin. Helsjúk!  Kjörnir fulltrúar sem og embættismenn hafa ástundað alræðisvald að eigin geðþótta. Hafa, yfirvegað og markvist ástundað –í umboðsleysi- að fara fram hjá gildandi landslögum og reglugerðum. Hafa markvist viðhaft þá refsiverðu starfsvenju að smána stjórnarskrárbundin mannréttindaákvæði, göfgi og gildi þjóðfélagsþegna. Hafa þar með smánað grunnréttindi borgaranna! Smánað friðhelg og óframseljanleg mannréttindi!  Stöðvum slíka starfshætti! Kjósum ekki siðblinda ofbeldismenn til stjórnsýslustarfa!  Nóg er komið af slíku! Virkjum mannréttindi hins almenna borgara!  Eflum almenna velferð byggða!


Ógnþrungið glæpaverk stórnsýslu Neskaupstaðar!

Oftast hleður aðventan hlýleik í hugi manna. Eða hvað?

Á myrku síðdegi aðventudags 3. des. 1997, fengust -óvæntar- sönnur þess að brostin væri öll mennska og hlýleiki margs samborgara innan valdastéttar Neskaupstaðar. Sem hvellur væri, blasti við birtingarmynd alvarlegs geðveiluástands innan stjórnsýslu staðarins.   

Sönnun geðveiluástands fólst í lymskulegri og vitifirrtri árás stjórnsýslu Neskaupstaðar. Gegn sérvöldum, alsaklausum þolendum. Sem af þeim sökum urðu fyrir miklum eignamissi. Máttu auk þess þola langvarandi lögbrota atferli samblokkaðra stjórnsýsluníðinga, undir forystu: Bjarna Stefánssonar sýslumannsSmára Geirssonar forseta  bæjarstjórnarEinars Más Sigurðarsonar formanns bæjarráðs, Guðmundar Bjarnasonar bæjarstjóra, Elmu Guðmundsdóttur formanns byggingarnefndar og Guðmundar H. Sigfússonar  byggingarfulltrúa. 

Kominn var dagur að kveldi. Söluvelta verslunar í hámarki. Frágangi og uppgjöri dags að ljúka. Þá, óvænt, í skjóli myrkus, staðnæmist lögreglubifreið við inngang verslunar K-Bónusar. Sem hönd væri veifað sprettur fram liðsveit þriggja lögreglumanna. Eins Norðfirsks og tveggja aðfenginna úr grendar umdæmi. Valdsmannslega og án alls fyrirvara, skipa komu menn fyrir um rýmingu lögmætrar verslunar. Komnir "Lögþjónar" neituðu brottreknum eigendum að taka til handagagns persónulega muni. Kváðu sýslumann fyrirskipa innsiglun verslunarrýmis, sem það stæði og skipuðu eigendum að verða á brott. Eigendum stranglega bannað að sinna umbúnaði til forvarna: vörulagers, tækjabúnaðar, rafeindastýrðs sölukerfis og öðru verðmætu. Verðmætur jólavarningur nýkominn á lager. Lokað á aðgengi rafmagnstöflu verslunar og íbúðar.

Að lögum bar lögreglu, strax við komu, að framvísa skriflegri lokunarheimild dómara! Því var neitað. Engin lokunarheimild hafði verið gefin út!  Allar sakagiftir "yfirvalda" á hendur eigenda verslunar K-Bónusar voru:   Ómerkar!    Ósannar!   Upplognar!   Glæpur!  Liðsafnaður Bjarna sýslumanns bar svipmót handtöku vopnaðra glæpamanna. 

Þessi sérkennilega upplifun birtingarforms Norðfirskrar löggæslu greyptist í hugi  verslunar eigenda:   Ógleymanlegt siðleysi!   Ótrúlegt glæpaverk!   Ótrúleg framkoma samborgara!

Hvort heldur framganga sýslumanns -við innsiglun/lokunar aðgerð- telst lögmæt eða glæpur, þá hvílir ávalt sú lögskylda á sýslumanni að mæta til gjörðastaðar hafandi  gjörðabók til skráninga heimilda og lýsinga vettvangsathafna og orðræðna. Gjörðabók skal -að lögum- vera opin gjörðaþola til innritunar andmæla og áskilnaðar.  Við lok athafna skal texti gjörðarbókar undirritast af gerendum sem þolendum og vottum.            

Gegn þessum, höfuð embættisskyldum, sem og öðrum lögboðnum starfsskyldum, braut Bjarni Stefánsson, sýslumaður!  Bjarni, framdi hér hegningarverð og refsiverð embættisbrot!  Hann: Viðhafði enga boðun!  Mætti ekki á aðgerðastað!   Hafði enga gjörðabók á vettvangi!  Dvaldi í felum meðan hans undirmenn frömdu ofbeldsverk!  Svaraði ekki síma!  Gaf sínum undirmönnum rými og svigrúm til óheftra níðingsverka! Löðurmannlegt, hegningarvert, örlagavaldandi glæpaverk!  Sýslumanns/lögreglustjóra.

Lögreglusveitin kom og hvarf, snögglega, að hætti óaldarmanna. Einka upptaka á Video-spólu er eina "gjörðabók"vettvangs. Mikilsvert sönnunargagn háttsemis og orðræðna, á stað og stundu, í máli og myndum. Þar heyrast og sjást öll augnablik vettvangs  

Framangreint glæpaverk "yfirvalda" leiddi til tugamilljóna eignatjóns þolenda! Það  tjón er enn óbætt!   

Aðventudagur, 3.des.1997 varð svartnættisdagur mannréttindasögu Neskaupstaðar.  

Furðu sætir að athafnir forystumanna hlutu ekki nein andmæli fulltrúa í tímans bæjarstjórnum og byggingarnefndum. Tvær undantekningar, þó: Stella Steinþórsdóttir, ein bæjarfulltrúa -9+9 manna bæjarstjórna- gerði efnislega, formlega tilraun. Pétur G. Óskarsson, einn fulltrúa -7+7 manna- byggingarnefnda barðist gegn marg viðhöfðum  lögbrotum nefnda og bæjarstjórna. Barátta beggja var virðingarverð. Náði samt ekki að koma bæjarstjórnum né byggingarnefndum, til vits og rænu. 

Án efa hafa lögregluþjónarnir þrír borið trúnaðartraust til lögmætis fyrirskipana yfirmanns. Slíkt er mannlegt! Í eðlilegu umhverfi!  En þeir störfuðu í umhverfi sjúklegs óheyðarleika!   Heyðarleiki og vilji lögregluþjóna verður ekki hér dreginn í efa. Málsrök eru að lögregluþjónarnir þrír störfuðu undir embættisvaldi óheyðarleikans. Embættisvaldi síbrota, ofbeldis, misnotkunnar og siðleysis! Lögregluþjónar heftir í spennutreyju yfirboðara! Fyrirvaralaust skipað til ómeðvitaðra lögbrota og ofbeldis starfa. Með þetta í huga  verður viðmót þeirra og framganga á vettvangi, skyljanleg. Lögregluþjónar framfylgdu skipun sýslumanns sem á óskýranlegan máta var að framfylgja eitilhörðum ofbeldiskröfum bæjarstjórnar Neskaupstaðar.   

Spurt:  Hvaða hvatir lágu til, að aðeins einn lögskráður, atvinnu/þjónusturekstur -af fjölmörgum- í Neskaupstað, hlaut útnefningu "yfirvalda" til að njóta dásemda  áratuga eignaeyðandi eineltis og löregluverndaðs ofurofbeldis stjórnsýslu Neskaupstaðar? 

                                                                                                                                              Fyrir hönd samtíðar og framtíðar, eru eftirtaldir gerendur krafðir heiðarlegra skýringa og svara:  Bjarni, Smári, Einar Már, Guðmundur B., Elma, Guðmundur H., allir núverandi og f.v. bæjarfulltrúar og byggingarnefndarmenn Neskaupstaðar/Fjarðabyggðar.

Hvernig gátu lýstir atburðir gerst í "velferðarbyggðinni" Neskaupstað/Fjarðabyggð?

 

   

    

  

 

 

 

 

 

 

 


Lögreglustjóri, rannsakaði eigin gjörðir?

Eru lögheimildir til slíks?

Umfjöllun um 8. mgr. ljósrits. Sjá blogg 26.10,2013. 

Í 8. mgr. ljósrits, ritar sýslumaður, Bj. St. "Mættum er gerð grein fyrir því, að lögreglustjóri telur mál þetta nægjanlega rannsakað til að leggja það fyrir ríkissaksóknara til þóknanlegrar umfjöllunar."

"Upplesið, staðfest. Magnús Jóhannsson  (sign)  Guðm. H. Sigfússon  (sign)  Bjarni Stefánsson  (sign)   

IX. KAFLI., Lög um meðferð opinberra mála.

 Hvað segir í þeim lögum?   Reyndust "yfirvöld" Neskaupstaðar, löghlýðin? 

4. gr., laga: "Í héraði sæta mál samkvæmt lögum þessum meðferð fyrir hinum reglulegu héraðsdómstólum."

Hvað gerði bæjarstjórn Neskaupstaðar?  Hvað gerði sýslumaður, Bjarni?  Sögðust þeir aðilar ekki vísa sínum -saknæma málatilbúnaði- gegn -verslunarrekstri að Miðgarði 4- til ríkissaksóknara? Í stað Héraðsdóms Austurlands?  Hvað olli því? Hér virðast þeir fremja lögbrot?  Hví þóttust "yfirvöld" Neskaupstaðar ætla að gera?  En þorðu ekki?  Í gjörðabók sýslumanns er ritað að gögn -um rannsókn- sýslumanns færu til ríkissaksóknara. Hví fundust þau gögn ekki móttekin hjá ríkissaksóknara?  Ritaði sýslumaður lygasögu í gjörðabók embættisins?  Höfðu máski "yfirvöld" í Neskaupstað ekki hreyna samvisku? Höfðu "yfirvöld" Neskaupstaðar ekki hugrekki til framkvæmda því sem þau boðuðu? Þessi málsmeðferð verður skoðuð síðar. 

66. gr., laga: "Rannsókn opinberra mála er í höndum lögreglu"

Öll fyrirlyggjandi málsgögn -nær aldarfjórðungs tímabils- í nefndum Karma h/f / K-Bónusar málum -verslunarrekstur að Miðgarði 4- bera sönnur þess að bæjarstjórn sem og Bjarni, sýslumaður, gerðust hin einu seku öfl, þá þau hófu ólögmætar, langtíma ofsóknir og píningar, gegn löglega rekinni verslun og eigendum!  Í Stað þess að Bjarni, sýslumaður segði sig frá lögreglurannsókn, málatilbúnaði bæjarstjórnar og Bjarna, sýslumanns, þá hóf Bjarni kostnaðarsama, ofsafengna "rannsókna" vinnu. Þar innifalið, rannsókn eigin gjörða! Hvernig er slíkt hægt? Þorði Bjarni að senda slík rannsóknargögn inn á borð ríkissaksóknara?   Verður skoðað og birt.   

 68. gr., laga: "Rannsaka skal og afla allra tiltækra gagna um verknað þann sem um er að ræða."/"og öll nánari atvik."

Hvað olli því að sýslumaður rannsakaði ekki fyrirlyggjandi málsgögn forvera síns?  Gögn sem voru og eru í vörslu embættisins!  Gögn er sýna og sanna algjört sakleysi þolenda lögreglurannsókna, Bjarna. Skorti sýslumann tíma til slíkrar skoðunar?  Eða kom ofsóknaræði Bjarna, sýslumanns í veg fyrir yfirvegaða skoðun fyrirlyggjandi sönnunargagna? Hvað boðar 68. gr. laga? "Rannsaka skal og afla allra tiltækra gagna"  Var það gert, Bjarni?  Hvers vegna var slíkt ekki gert? Fór máski meginn tími þinna lögreglurannsókna, í sjálfsrannsóknir? 

72. gr., laga: "Rannsóknari semur skriflegar skýrslur um rannsóknaraðgerðir sínar"/"skal rannsóknari hafa einn greinargóðan og trúverðugan vott,"

Hvar lyggja rannsóknarskýrslur?  Lögboðin og vottuð réttarskjölin? Þau gögn hafa ekki komist í dagsbirtu.  Teljast samt hluti kærugagna!  Rannsóknarskýrslur má ekki fela!  Magnús, Guðmundur, Bjarni, greinið frá!  Hvað varð um rannsóknarskýrslur?  Voru þær máski aldrei skrifaðar? Þótt lagaskylda sé?  Ef svo, þá hafa "yfirvöld" Neskaupstaðar framið enn eitt lögbrotið. 

76. gr., laga: Lögregla vísar frá kæru um brot ef ekki þykja efni til að byrja rannsókn út af henni." 

Hví vísaði sýslumaður, Bjarni Stefánsson -borðalagður vörður lögmætis og réttar- ekki beiðni byggingarfulltrúa/bæjarstjórnar frá lögreglurétti? Í fullri heimild laga! Vitandi að engin sök var í málum. Á borði sýslumanns voru sönnunargögn er sýndu og sönnuðu að rangar sakagiftir voru fram settar. Sönnunargögn um sakleysi eigenda verslunar!  Hví skoðaði sýslumaður ekki þau sönnunargögn? Skoðun þeirra gagna hefði gefið sýslumanni tækifæri til að vitkast. Vitkast um allan sannleik! Þá hefðu gefist vísbendingar um að engin þörf gaf tilefni til kostnaðarsamra sýndar lögreglurannsókna! 

Grunsamlegt helsi reyndist hangandi á lestrarfærni sýslumanns og vilja hans til skilnings á fyrirlyggjandi sönnunargögnum. Gögnum er opinberuðu sakleysi verslunareigenda! Sá viljaskortur sýslumanns, skóp af sér áratuga, vitifirrt, lögregluverndað, glæpaferli! Stjórnsýslu Neskaupstaðar! 

Ein æðsta embættisskylda lögreglustjóra/sýslumanna, er: Löghlýðni, almenn lögvernd og mannvirðing. Þau góðu gildi vanvirti sýslumaður, Bjarni Stefánsson.  Hann opinberaði sig sem síbrotamann í embættisstörfum!  Óhæfur til embættisverka sökum óheilinda og misnotkunar! Reyndist vanhæfur fulltrúi, umsjónar og höndlunar, laga og réttar!    Um ára fjöld! 


Yfirvöld-Nes. Móttaki hegningu refsivaldsins!

Loka umfjöllun ljósrits.  Blogg,  26,10,2013.   "Beiðni byggingarfulltrúa".
 
Við ritun 10. mgr. ljósrits, skrifar sýslumaður "Mættu samþykkja -samþykkja tillögu hvers?Sýslumanns, Smára Geirssonar,  eða?-  að málið verði sent ríkissaksóknara, en kveða málatilbúnað bæjaryfirvalda beinast eingöngu að brottnámi hins ólögmæta ástands að Miðgarði 4, en krefjast eigi að  fyrirsvarsmönnum Karma h/f verði refsað fyrir athæfi sitt, né er krafist neinna bóta."                 
Upplesið, staðfest.  
Magnús Jóhannsson (sign)    Guðmundur H. Sigfússon (sign)    (Bjarni Stefánsson (sign)  
 
Hið nefnda "ólögmæta ástand" var og er upploginn tilbúningur Bjarna, sýslumanns, bæjarstjórnar og byggingarnefndar.  Framsett til að forsvara viðhaft ofbeldi með geðveikisfullum málatilbúnaði samgróinna yfirvalda í Neskaupstað. Samgróinna, án lögheimilda til slíks samstarfs! 
Framsettur málatilbúnaður með upplognum -mannorðsspillandi og velferðar eyðandi- sakargiftum, gegn eigendum Karma h/f / K-Bónusar. Ef eitthvert ólögmætt ástand var og hefur reynst vera, þá er það að finna í geðveikislegu og refsiverðu lögbrotaferli sýslumanns, Bjarna Stefánssonar og siðblindrar bæjarstjórnar undir yfirstjórn Smára Geirssonar, Guðmundar Bjarnasonar og Einars Más Sigurðarsonar. Sem og afvegaleiddrar byggingarnefndar Neskaupstaðar. 

Samkvæmt ákvæðum laga, þá eru lögheimildir til að kæra hinar refsiverðu athafnir sýslumanns, bæjarstjórnar og byggingarnefndar, inn á hegningarvettvang hjá ríkissaksóknara.
Tilvitnað ólögmætt ástand, var hvorki að finna í háttsemi né "athæfi" eigenda K-Bónusar, né eigenda Miðgarðs 4.  
 
Hið ólögmæta ástand var einvörðungu að finna, og lá alfarið í athæfi og lögbrotum sýslumanns, bæjarstjórnar og byggingarnefndar!
Þeirra var og er að móttaka hegningu opinbers refsivalds. Ef af verður.
 
Sökum framangreinds sannleika, hefur sameinuðum ofbeldisöflum í Neskaupstað, ekki tekist, í nær aldarfjórðung, að framhvæma lokun löglegs atvinnurekstrar, að Miðgarði 4.                                      
Þrátt fyrir þrotlausar og stanslausar lögbrotaferils tilraunir, þess efnis! 
 
Spurning til framangreindra valdhafa. Fékk annar atvinnurekstur í Neskaupstað, að njóta -stanslaust í aldarfjórðung- svipaðs ofbeldis og hér hefur verið marglýst?  Ef svo?  Nefnið þá viðkomandi!  Þess er hér með krafist!  Ef ekki!  Greinið þá frá hvers vegna aðrir fengu ekki að njóta nauðpíninga og kúgunar, rústunarafla Norðfirskrar stjórnsýslu.   Krafist er!   Verið menn til að svara! 
 
Aðeins einn bæjarfulltrúa -Stella Steinþórsdóttir, húsfrú- gerði virðingarverða tilraun með tillögufluttningi á bæjarstjórnarfundi, til að beina störfum bæjarstjórnar inn á löglegar brautir. Aðeins einn fulltrúi í Byggingarnefnd -Pétur G. Óskarsson, byggingameistari- viðhafði, á fjölda funda, tilraunir til að koma störfum byggingarnefndar í lögmætt ferli. Allt án árangurs, sökum ráðstjórnar Smára Geirssonar!  Þessir tveir fulltrúar í stjórnsýslu Neskaupstaðar, eiga þakkir skyldar fyrir tilraunir sínar.  
 
Spurning til Bjarna, sýslumanns og flestra bæjarfulltrúa og nefdarmanna í byggingarnefnd. 
Hvað varð þess valdandi að þið glötuðuð siðferðisskynjun, jarðbindingu, löghlýðni, viti og visku, um ára fjöld, við afgreiðslur mála? 

Máttuð þið ekki vita -öll árin- að ekkert ólögmætt ástand var ríkjandi við Miðgarð 4. Að ekkert ólögmætt "Athæfi" var í gangi!
Það þurfti ekki mikla glöggskyggni né fyrirhöfn til að vitrast um það.
 
Sökum þess að ekkert ólögmætt var ríkjandi við Miðgarð 4, nægði yfirvöldum Neskaupstaðar ekki tæplega aldarfjórðungs tími, til kúgunar og útrýmingartilrauna gegn löglegum atvinnurekstri að Miðgarði 4.  Hins vegar náðu yfirvöld Neskauðstaðar, með geðveilnis þráhyggju til lögbrota, að hindra og eyðileggja velferð og mikil veraldleg verðmæti.
 
Verðmæti sem enn eru óbætt!  Yfirvalda Neskaupstaðar/Fjarðabyggðar, er skuldin!
 
Háttsemi stjórnsýslu Neskaupstaðar/Fjarðabyggðar, í gegnum tvo+ áratugi, minnir á nornaveiðar miðalda!
 
Er hugsanlegt að foringjar ofsókna gegn verslun K-Bónusar, hafi haft skemmtan af háttsemi sinni?
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Virðinarverð framför.

Framhald umfjöllunar.  Nú,  10. mgr. ljósrits. Blogg, 26,10.2013. "Beiðni byggingarfulltrúa."
 
Í 10. mgr. ljósrits, ritar Bjarni, sýslumaður: "Mættu samþykkja að málið verði sent ríkissaksóknara, en kveða málatilbúnað bæjaryfirvalda beinast eingöngu að brottnámi hins ólögmæta ástands að Miðgarði 4, en krefjast eigi að fyrirsvarsmönnum Karma h/f verði refsað fyrir athæfi sitt, né krafist neinna bóta."  
"Upplesið, staðfest."    Magnús Jóhannsson (sign)    Guðmundur H. Sigfússon (sign.)    Bjarni Stefánsson  (sign.)   
 
Þá vita lesendur það. Formlega skal glæpurinn skrásettur. Staðfestur í orðanna hljóðan!
Finnst samt sem þarna vanti bókunaratriði. Í stíl við bókun sýslumanns, Þá  hann ritar, 7. mgr. ljósrits.  Þar gerist sýslumaður skilagóður, og bókar: "Farið er yfir lagaákvæði, sem koma helst til álita, og sérstaklega  c. lið. 2 gr. laga,"  
 
Þessu samkvæmt, þá stundina, hefur þremenningunum fundist ástæða til og rökrétt að skoða lög?    Virðingarverð framför!    Þótt svo skoðunin leiddi af sér rangtúlkun!
 
Rangtúlkun sem enn og aftur er viðhöfð. Þá stund sem framangreind gjörðarbókun er rituð.
 
ÍtrekunMagnús, Guðmundur, Bjarni!  Það var ekkert ólögmætt ástand ríkjandi við  Miðgarð 4. 
 
  
 
 
 
 
 

LOKUN: Örstutt athöfn, ef lögmæt er!

Framhald umfjöllunar. Nú, 7. mgr. ljósrits, blogg 26.10.2013.  
 
(Umfjöllun um 3. mgr. ljósrits. -blogg, 26.10.2013.- finnst á bloggi, 12.09.2013.) 
 
Í 7. mgr. ljósrits, skráir Bjarni sýslumaður: "Farið er yfir lagaákvæði sem koma helst til álita, og sérstaklega c. lið 2. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991."
 
Hér, gegnumlýst þessi framsettning, Bjarna. Hér skoðað gildissvið tilgreindra laga, um meðferð opinberra mála, nr.19/1991. Og horft til gildissviðs tilvitnunar í  2. gr., c. liðar.  
Þar segir:  Höfðað  "mál til brottnáms ólögmæts ástands eða til að koma fram viðurlögum fyrir það, öðrum en refsingu, enda eigi fyrirsvarsmaður almenningshagsmuna aðild."
 
Í fláræðisskap, skrifar sýslumaður, Bjarni, "hins ólögmæta ástands að Miðgarði 4."
 
Óhrekjanleg staðreynd er, að ekkert ólögmætt ástand, var ríkjandi, við Miðgarð 4. Neskaupstað.
 
Hefði svo verið, þá gat sýslumaður, fyrirvaralaust, lokað og innsiglað aðgengi að verslun K-Bónusar!  Slík lögleg aðgerð hefði tekið sýslumann, innan við fimmtán mínútur!  Í stað þess glæpsamlega, að rembast, með útþanda bringu, árum saman, á vængjum ofbeldis, lögleysu, og marg-ósannsöglis.
 
Ósannsöglis og fláræðis!  Að hætti 19. aldar siðferðis, hins þekkta, leikgerða, predikara.
Séra Sigvalda.    
 
 
 
 

Krafist lokunar og innsiglis.

Framhald umfjöllunar.  Nú, 2.mgr. ljósrits. Sjá blogg, 26.10.2013.
   
Hvert það stjórnvald - hér, bæjarstjórn- sem leitar til sýslumanns/lögreglustjóra og beiðist lokunar á rekstri, er hefur öll tilskylin rekstrarleyfi á hendi, verður að rökstyðja framlagða beiðni með tilvitnun í lögheimildir. Lokun gerist ekki án heimilda í lögum. Það er grundvallaratriði lýðræðis. 
 
Forveri Bjarna Stefánssonar, í embætti sýslumanns, hafnaði beiðni bæjarstjórnar um lokun rekstrar, með þeim rökum, að heimildir laga, væru ekki til staðar.  
 
Í embættistíð sýslumanns, Bjarna Stefánssonar, kröfðust byggingarfulltúi og bæjarstjórn, bréflega og marg sinnis, að sýslumaður innsiglaði aðgengi verslunarrekstrar, að Miðgarði 4.   
 
Þær kröfugerðir leiddu til stórglæpa í háttsemi, sýslumanns, Bjarna Stefánssonar.
Og urðu gerðir hans og bæjarstjórnar, höfuð orsakavaldar gífurlegra eignaskemmda, á íbúðarhúsi og öllu innanstokks í íbúð verslunareigenda. Auk þess, algjörri eyðileggingu tækja og vörulagers verslunar. Húsnæði verslunar fór í rúst. Skemmdir fengust lítt bættar -hjá Vís-tryggingum- sökum lyga og fyrirmæla Bjarna, sýslumanns.
Það verður nánar rætt síðar, hér á bloggsíðu, ásamt mynbirtingum.  
 
Hví voru lögmenn bæjarins ekki látnir annast kröfugerð, um lokun og innsiglun, ef lögmæt var?
Svarið er einfalt!  Kröfurgerðir bæjarstjórnar fólu í sér glæpsamlegt ofbeldi og eignarán.
Framsett af yfirstjórn Smára Geirssonar, Guðmundar Bjarnasonar og Einars Más Sigurðarsonar. 
 
Í 22 ár, hafa vitifyrrtar bæjarstjórnir barist fyrir lokun verslunar að Miðgarði 4.  Án árangurs! Staðreynd er, Þótt vitfirring vilji, það lög banna, þá virkar lögvernd laga?   Stundum! 
 
 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Gestur Janus Ragnarsson

Höfundur

Gestur Janus Ragnarsson
Gestur Janus Ragnarsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Byggðamyndir 40
  • IMG_3412
  • Brúðkaupsmynd
  • Rakel Guðlaug
  • 008

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband