Bófi? - Bófar?

Hugtök  sem  bófi,  bófar,  eru  stutt  samheiti. Ýmist  yfir  siðsjúkan  einstakling  eða  hóp  einstaklinga.  Sem  meðvitað   geta  ei  unnið  framgang   mála,  án  þess  viðhafa   brot  gegn  mannlegri  virðing,  siðferði,  öðrum  gildandi  samfélagsreglum,  sem  og  landslögum!   Bófi - bófar:   Eru  hugtök  varðandi  einstaklinga,  sem  upplifa  ei  fullnægju  í  starfi  né  störfum!   Án  þess  geta  viðhaft  ofbeldi  og  kúgun!  Viðhaft  skemmdir  eigna,  lífsgæða  og  mannorðs,  annarra!   

Gildir hér  jafnt   um   götunnar  menn,  sem  ofurlauna  embættis  og  forystu  og  stjórnmálamenn!    Sem  og  ofurmörg  tilvika  frá  hendi  siðblindra!   Borðalagðra!   

 


DýrkeyptarR Nætur!

Góðan dag! kæru lesendur! Við fótmál-morguns, blasti við augum fögur fjallasýn.Hiti 11,9 stig. Norðfjörðurinn spegilsléttur, léttskýjað og  vermandi  sólskin. Auk þessa,afmælisdagur í minni atgerfis mikklu og góðu fjölskyldu. Frábær dagur! Hné-djúpt snjóþykkni 1.sumardags, er 98% horfið og vorfuglar syngja. Ég hafði hvíldar-góðan nætursvefn. Þrátt fyrir að dýrkeypt nóttin kosti – samkvæmt áður frá greindum dagsektum Norðfirskra bófaforingja - kr.10.000- án verðtygginga! En samtals kr.26800- með vísitölu verðbótum! Auk annars til fallandi húsnæðis kostnaðar! Alls þessa velvilja og okurs, nýt ég í boði –góðs- bygginganefnda og bæjarstjórna fólks í Neskaupstað og sýslumannsins,þáverand,sem og skyldmenna og fyrrum heimilis vina! Að sofa heima í eigin rúmi,getur, þessu samkvæmt,reynst ofur dýr lúksus! Norðfirskir bófar,hafa – óumbeðið – mótað allt skipulag þessa ríkjandi gæfu ástands! Spurning er hvort öðrum aðilum, búsettum í Neskaupstað, gefist kostur á slíkri drauma þjónustu!  Slíkri upplifun og lúxus?    Ef svo er?   Þá njótið vel!  


Dagsektir: 86 / 184 milljónir?

Samþykkt bygginganefndar, 13.jan.1992: „Lagðar dagsektir á Karma hf.“  „Sektin nemur kr. 10,000- á hvern byrjaðan sólarhring frá og með 13.janúar 1992 að telja.“ Þessum fyrirmælum geðþótta sjúkra bygginganefnda og bæjarstjórna Neskaupstaðar hafa verslunareigendur barist gegn, í meir en tvo áratugi, án árangurs! Orsakir baráttu eigenda?  Bæjarstjórn undir forsæti Smára Geirssonar, viðhafði ólögmætan geðþótta! Meða þolendur -eigendur Karma hf., K-Bónusar- hlýddu landslögum! Lögbrot frömdu bygginganefnd og bæjarstjórn Neskaupstaðar sem og þ.v. sýslumaður Bjarn Stefánsson! Bjarni St. þ.v. sýslumaður/lögreglustjóri, braut sífellt gegn stjórnarskrár bundinni mannréttindavernd, lögboðnum starfsskyldum sínum og síns embættis. Bjarni gerðist -ásettnings- meðvirkur öðrum bófum bæjarstjórnar og bygginganefndar Neskaupstaðar með sínum yfirvegaða  stuðningi við  framkvæmd lögbrota / glæpa, gegn saklausum! Hin ólögmæta ákvörðun bæjaryfirvalda hefur hvorki verið afturkölluð né afnumin! Hinar ólögmætu dagsektir teljast í dag vera  orðnar 85 milljónir! Þá á verðlagi janúar 1992. En ef vísitölubættar?  Orðnar um 184 milljónir? Bæjarsjóður gæti keypt mergð Túlipana fyir nefndar milljónir! Krafist er að bæjaryfirvöld, dagsins í dag, upplýsi hvort aðrir samborgarar hafi verið beittir slíkum glæp?  Ef svo?  Hversu margir?  Hverjir?   Yfir 300 aðilar koma til greina! Miðað við nefnd árábil!

Heiðarleiki!   Löghlýðni!   Býr til betra samfélag! 


Kolkrabbinn!

 

Viðtalsfrétt Morgunblaðs 13.maí 1993,varðandi helför yfirvalda í Neskaupstað til stöðvunar verslunarrekstrar Karma hf/K-Bónusar  Miðgarði 4 Neskaupstað. Eigendur þess rekstrar höfðu öll lögboðin starfsleifi á hendi! Voru hvorki að brjóta gegn lögum né reglum!Viðtal fréttamanns Mbl: „Guðmundur Bjarnason bæjarstjóri segir að allar aðgerðir bygginganefndar í þessu máli hafi verið samþykktar samhljóða í bæjarstjórn þar sem sitja fulltrúarar Alþýðubandalags, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks.“ „ Af þeim sökum vísa ég algjörlega á bug að um pólitískar ofsóknir hafi verið að ræða í þessu máli.“  „Segir Guðmundur.“ Með vísan til framanritaðs og margs annars skal sagt! Það blundar í hugarheimi ritara bloggsíðu,að frásagnir -fyrr, nú og síðar- verði,í fyllingu tíma,undanfari útgáfu bókar! Bókar er verði boðberi  sannrar,skjalfestrar sagnfræði varðandi ofbeldi og kúgun siðsjúkra geðbragðs yfirvalda í Neskaupstað,árin 1980 til 2015. Gangi svo fram verður líklegust nafngift bókar?   Kolkrabbinn!   Rauð-græn–blái!   Undir Norðfjarðar Nípu!  Tilvitnuð samhljóða samþykkt bæjarfulltrúa –þriggja- flokka um beitingu lögbrota og ofbeldis gegn saklausum,flokkast sem stjórnsýsluglæpur! Sú mótatkvæðalausa samþykkt bæjarstjórnar sem bæjarstjóri nefnir í viðtali sínu,er öflug birtingarmynd þess dáleiðsluvalds sem réttnefndur einvaldur -þess tíma stjórnsýslu Neskaupstaðar- bjó yfir Þá hann,Smári Geirsson,tók til máls! Bæjarfulltrúar þryggja flokka,sem og bæjarstjóri glötuðu -við hans orð- líkams þreki, ráði og rænu! Ómeðvitaðir þess að lög eru æðri þeirra persónu fjötraða geðþótta!


Mai-sólin vermir

Í dag vermir mái sólin Norðfirðinga, við  lognkyrrð og heiðrýkju. Fjörðurinn sem spegill  um hádegisbil. Snjóþekjan þykka sem  sunnlendskir íþróttamenn færðu  með sér til Norðfjarðar, aðfarardag  sumardagsins fyrrsta,  er til brottfarar þrjósk og kvelur smáfugla  sem enn eru á fóðrum hjá gjafmildum.  Götur auðar og þurrar. Síðustu  vikur vetrar  var jörð alauð,  garðtré byrjuð að laufgast og  þrestir sungu af gleði.  Augljóst má vera að Norfirðingar  búi að góðum vatnsforða á komandi sumri.


Ólögmætar! Dagsektir!

Einn stjórnsýsluglæpa yfirvalda í Neskaupstað gegn rekstri verslunar  Karma hf./ K-Bónusar- birtist í fundargerð  bygginganefndar dags. 13..janúar 1992, svo hljóðandi: „lagðar dagsektir á Karma h.f. þar sem ekki hefur verið sinnt fyrirmælum bygginganefndar. Sektin nemur kr. 10.000- á hvern byrjaðan sólarhring frá og með mánudeginum 13. Janúar 1992  að telja og þar til orðið hefur verið við fyrirmælum bygginganefndar.“ „Að þessum fresti loknum verður  leitað lögregluaðstoðar til að loka versluninni.“  

„Byggingafulltrúinn  í Neskaupstað

Guðmundur Helgi Sigfússon.“

„Samrit sent Bæjarfógetanum í Neskaupstað“                      


Barátta yfirvalda í Neskaupstað við verslunina Karma.

 

Frétt Morgunblaðs 13.maí 1993.

"Bæjaryfirvöld á Neskaupstað hafa ítrekað reynt að loka Versluninni Karma að Miðgarði 4 frá því síðla árs 1991. Þær tilraunir hafa engan árangur borið og nú í vetur sendi sýslumaður, að beiðni byggingafulltrúans, málið til rannsóknar hjá ríkissaksóknara. Gestur Janus Ragnarsson talsmaður Karma segir að hér séu á ferðinni pólitískar ofsóknir af hálfu bæjaryfirvalda og valdníðsla af hálfu sýslumanns. Guðmundur Bjarnason bæjarstjóri vísar þessu á bug og segir að allar aðgerðir bygginganefndar hafi verið eftir lölegum leiðum. Bjarni Stefánsson vísar einnig á bug að um valdníðslu hafi verið að ræða." 

Forherðing Guðmundar og Bjarna er fortakslaus þá þeir útbreiða lygar, tvíradda! Og kinnroðalaust!                                                                                                       Staðfesting fékkst frá höfuðstöðvum þáverandi ríkissaksóknara, þess efnis að embættinu hafði ekki borist nein beiðni. Hvorki frá bæjarstjórn Neskaupstaðar né frá sýslumanninum í Neskaupstað! Hvers vegna grípu embættismenn -Neskaupstaðar- til svo forhertra lyga? Og það um árafjöld! Hversvegna gátu, Guðmundur og Bjarni og arftakar, ekki lokað lögmætum verslunarrekstri? Verslunarrekstri er hafði öll tilskilin starfsleifi á hendi?           


BLOGGSÍÐA ENDURVAKIN!

 

Allt frá því ritari bloggsíðu lenti í umferðarslysi 27.nóv.2014, hefur virkni verið í dvala. Gangi fram sem horfir, verður bloggsíðan virkjuð á ný. Að stofni til mun efnisval verða svipað sem fyrr. Umfjöllun varðandi fjölþætt dægurmál: Ójöfnuð, Veðurfar, náttúrufegurð Norðfjarðar, mannréttindi, friðhelgi eignaréttar og afkomu. Alvarlegar brotalamir –lögbrot!-siðferðisbrot!- í meðferð umboðsvalds! Stjórnsýslu ofbeldi -lögreglu drifið- gegn löghlýðnum borgurum! Rétt heimila til mannsæmandi tekna og afkomu! Eitt má ei gleymast! Lögboðinn er jafn réttur: Til lífs! Til virðinga! Til athafna! Til eignanota! Til menntunar! Til bjargræðis og afkomu! Til heilsuverndar og velferðar!


HUGLEIÐING varðandi VIRÐISAUKASKATT!

Verslunin System var  þekkt í Neskaupstað og  nær byggðum. Rekstur, stöðvaður eftir nær 23.ára þjónustu. Þá „Sparisjóðurinn Norðfirði“ yfirtók vörulager og falbauð hann á 15 daga útsölu með, allt að 80% afslætti!  Sú  meðhöndlun  Norðfirsks peningaauðvalds, vakti forvitni!  Gegnsæi og skýrleik athafna, er vant!

Mjög þekkt svipmót -reysnar Neskaupstaðar- er horfið sjónarsviði almennings og túrista! Dapurt niðurhal á atgerfisframtaki einstaklinga!  Niðurhal gegn mögulegum vexti Neskaupstaðar!  Athygli vakti  -á útsölustað-  að engin sölukassi með lögboðnum búnaði, til skráninga upplýsinga um söluveltu, til uppgjörs virðisaukaskatts, var í notkunn!  Aðeins einföld reyknivél og posi!  Söluvelta, greidd með peningum, fer ekki gegnum posa!   Boðskapur strangra laga um tekjuskráningu virðisaukaskattsskyldra,  er:  „Allir“ / „sem skattskyldir eru samkvæmt lögum nr. 50/1998,  um virðisaukaskatt“ / “skulu halda bókhald yfir kaup sín og sölu á virðisaukaskattsskyldum vörum og þjónustu“ /  „Gyldir þetta einnig um þá sem ekki eru taldir bókhaldsskyldir samkvmæmt lögum  nr. 145/1994, um bókhald.“ (Tvíhliða bókhald)  Gildissvið þessa:  „Við sérhverja afhendingu á skattskyldri vöru eða þjónustu, skal seljandi gefa út sölureikning“ (sölukassa kvittun) „Samtímis og afhending á sér stað“  Svo „unnt sé að sannreyna að allar tekjur komi fram.“

 



ÞYRNIRÓSU SVEFN!

Dagur lýðveldistofnunar á Íslandi, ár 1944, var eftirminnilegur. Veðurblíða í Neskaupstað. Fjölsótt hátíðarhöld  fóru fram í skrúðgarði bæjarins, samlyggjandi við þá nýlega sundlaug. Í þann tíma var íþróttavöllur staðarins úti á „á bökkum“ rétt vestan núveranmdi innsiglingarvita. Margt var  -samkvæmt minni- í boði til gamans og alvöru:  Ræðuhöld, kórsöngur, fimleikar, fótbolti, almennur dans, að kvöldi. Haldinn í fimleikasal  hins –þá ca. 15 ára-  myndarlega húsnæðis barnaskólans. Hamingja og gleði lék um hugi flestra viðstaddra.

Þann 17. júní 1964, var þess minnst að tuttugu ár væru frá lýðveldistöku. Mikið var við haft.  Ræður fluttar. Tónar  fagurklæddra liðsmanna lúðrasveitar, undir stjórn  tónmeistarans Haraldar Guðmundssonar, hljómuðu vítt um fjörðinn. Uppákomur við íþróttavöll og sundlaug: Í formi keppnis íþrótta, ýmissra glens og gaman atriða og dansleiks að kvöldi.  Þá var afmælis lýðveldisstofnunar minnst með pomp og prakt, við gleði og líflega þáttöku  bæjarbúa.

Í dag, 17,júní 2014,  er því mætt með söknuði  í Neskaupstað  að ekki skuli þess  minnst að sjötíu ár eru  liðin frá lýðveldistöku þjóðar.  Engir viðburðir: Á sviði tónlistar, söngs, kóra né einstaklinga, ekkert líf við sundlaug, ekkert líf  á íþróttavelli, engin ræðuhöld, engir hoppukastalar, engin tjöld með veitingum og uppákomum, engin fjallkona, engir hestamenn, engir dansleikir, engir fánar við hún flaggstanga opinbera stofnanna, og ???  Hrósa má þó allmörgum eigendum íbúðarhúsa fyrir virðingu þeirra við þjóðhátíðardag.  Þótt svo ofmargar fánastangir  hafi verið við hvíld.  Einnig má  hrós berast eigendum gistiheimilis Capitano, verslunar  Nesbakka, umsjón Olís stöðvar og mynjasafns. Fyrir að draga fána að hún í tilefni þjóðhátíðardags.  Að öðru, ekkert sjáanlegt í boði fyrir aldna né unga, í Neskaupstað.

  Þyrnirósubklær yfir þjóðhátíðardegi í Neskaupstað!   



« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Gestur Janus Ragnarsson

Höfundur

Gestur Janus Ragnarsson
Gestur Janus Ragnarsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Byggðamyndir 40
  • IMG_3412
  • Brúðkaupsmynd
  • Rakel Guðlaug
  • 008

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband